Fara í efni

Önnur umhverfismál

Vestfjarðastofa lætur ýmis umhverfismál sig varða þar sem þau tengjast lífsgæðum, lýðheilsu, atvinnuþróun og byggðaþróun á Vestfjörðum sterkum böndum. Til 2026 mun nokkur umræða um umhverfismál fara fram á vettvangi Svæðisskipulags Vestfjarða m.a. þjóðgarða og friðuð svæði, skógrækt, líffræðilega fjölbreytni, loftslagsaðlögun og endurheimt vistkerfa. Vestfjarðastofa hefur gefið út tvær skýrslur þessu tengdu, Þjóðgarðar á Vestfjörðum og Kolefnisjöfnun á Vestfjörðum, en sú síðarnefnda kemur inn á endurheimt vistkerfa, loftslagsaðlögun lífræðilega fjölbreytni og skógrækt.