Fara í efni

Loftslagsstefna sveitarfélaganna

Samkvæmt lögum um loftslagsmál frá árinu 2012 hefur það verið lagaskylda sveitarfélaga að setja sér loftlagsstefnu til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda af starfsemi sinni. Hluti af gerð loftslagsstefnu er gerð áætlunar um orkusskipti, áætlunar um kolefnisjöfnun, innleiðing rafræns græns bókhalds og úttekt á kolefnisspori Vestfjarða

Á 68. Fjórðungsþingi samþykktu sveitarfélögin á Vestfjörðum að hefja vinnu við loftslagsstefnugerð á Vestfjörðum samhliða gerð svæðisskipulags. Vinna hófst þegar haustið 2023 og stendur yfir á vettvangi svæðiskipulagsins og í samvinnu Vestfjarðastofu og sveitarfélaganna 2024-2026. Gerð loftslagsstefnu má skipta upp í fjögur skref:

Skref 1. Útreikningur losunar á viðmiðunarári

  • Reikna losun gróðurhúsalofttegunda vegna þeirra þátta sem stefnan tekur til, yfir eins árs tímabil. Það tímabil er þá notað sem viðmiðunarár (grunnár) sem samdráttarmarkmið miðast síðan við.

Skref 2. Loftslagsstefna mótuð

  • Setja fram loftslagsstefnu sem inniheldur tölusett yfirmarkmið um samdrátt í losun.
  • Setja fram stefnu um kolefnisjöfnun

Skref 3. Mælanleg markmið og aðgerðaáætlun

  • Setja mælanleg markmið fyrir hvern losunarþátt
  • Setja mælanleg markmið um kolefnisjöfnun
  • Skilgreina aðgerðir með áherslu á stærstu þættina
  • Meta hversu miklum árangri aðgerðirnar skila
  • Kostnaðarmeta aðgerðirnar
  • Setja fram fjármagnaða og tímasetta aðgerðaáætlun sem skilar settu markmiði

Skref 4. Framkvæmd, eftirfylgni og endurskoðun

  • Ráðast í aðgerðir samkvæmt aðgerðaáætlun
  • Endurmeta markmið og aðgerðaáætlun með reglulegu millibili

Í janúar 2025 vory sveitarfélögin stödd í þremur fyrstu skrefunum samtímis. Vestfjarðastofa með sveitarfélögunum er að innleiða rafrænt "grænt bókhald” frá fyrirtækinu Klöppum ásamt því að kolefnisspor Vestfjarða er einnig í úttekt. Þegar þetta tvennt er komið á veg, er hægt að fastsetja “núllið” í skrefi eitt. Nefnd um svæðisskipulag vinnur nú að skrefi 2 og mun það fara í almenna kynningu sem tilheyrir skipulagsferlinu, en áætlað er því ljúki vorið 2026. Hvert og eitt sveitarfélag tók þátt í vinnustofum Vestfjarðastofu á haustmánuðum 2024 sem greindu mögulega aðgerðir til orkuskipta og samdrátts í losun gróðhúsalofttegunda, á þeim grunni verður áfram unnið að þriðja skrefinu.

Starfsmaður verkefnis