Fara í efni

Sumarmarkaðir Vestfjarðaleiðarinnar

Fréttir

Vestfjarðaleiðin er ferðamannaleið um Vestfirði og Dali með einstökum áningarstöðum og upplifunum þar sem auðvelt er að kanna króka og kima svæðisins og upplifa óspillta náttúru. Á svæðinu eru líka fjölmargir matvælaframleiðendur, handverksfólk og aðrir smáframleiðendur sem með framlagi sínu bæta enn frekar á jákvæða upplifun gestanna sem sækja okkur heim. Við viljum nú blása til kynninga á þessum aðilum með sumarmörkuðum á Vestfjarðaleiðinni í júlí. Settir verða upp markaðir á fjórum stöðum og fjórum mismunandi dagsetningum sem hér segir:

Dalabúð Búðardal 6. júlí, kl. 13:00 - 17:00

Túnið við Galdrasýninguna Hólmavík 14. júlí, kl. 15:00 - 17:00

Torgið Patreksfirði 15. júlí, - kl. 14:00 - 17:00

Dokkan Ísafirði 26. júlí, - kl. 13:00 - 16:00

Matvælaframleiðendur, handverksfólk, listafólk, smáframleiðendur og aðrir sem vilja taka þátt í mörkuðunum eru hvött til að skrá sig til leiks sem fyrst og sýna hvað Vestfjarðaleiðin hefur upp á margt að bjóða. Hægt er að skrá sig til þátttöku á öllum mörkuðunum eða bara útvöldum. Þátttaka er gjaldfrjáls.

Skráning fer fram hér

Í Búðardal verður markaðurinn í samstarfi við bæjarhátíðina Heim í Búðardal. Dagana sem markaðirnir eru á Ísafirði og Patreksfirði eru skemmtiferðaskip í höfn svo það verður margt ferðafólk á ferli.

Ef einhverjar spurningar eru má hafa samband við Þórkötlu hjá Markaðsstofu Vestfjarða á thorkatla@vestfirdir.is