Umhverfismála- og ferðaþjónustyrkir
Minnt er á að umsóknarfrestur um tvær gerðir styrkja sem tengjast menningarmálum rennur út á næstunni.Á mánudaginn 28.janúar er síðasti möguleiki að senda inn umsókn í Umhverfissjóð Ferðamálastofu, en tiltölulega þægilegt er að fylla út og senda umsóknir þar inn. Í ár er lögð áhersla á aðgengismál, sjá á heimasíðu Ferðamálastofu: http://www.ferdamalastofa.is. Á undanförnum árum hefur sjóðurinn oft styrkt verkefni sem snúast um aðgengi að sögustöðum og merkingar þeirra.
24. janúar 2008