Sinfóníuhljómsveit Íslands til Ísafjarðar
Fimmtudaginn 24.janúar nk.heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands tónleika á Ísafirði.Langt er um liðið síðan hljómsveitin spilaði síðast á Vestfjörðum, en tilefnið að þessu sinni er 60 ára afmæli Tónlistarskólans á Ísafirði og Tónlistarfélags Ísafjarðar, en tónlistarlíf er sem kunnugt er afar blómlegt á Ísafirði og nágrenni.
18. janúar 2008