11. apríl 2025
Fréttir
Vestfjarðastofa heldur utan um styrktarsjóð Hafna Ísafjarðarbæjar. Markmið með sjóðum er að styrkja og bæta bæjarbraginn og eru í ár 8 milljónir til úthlutunar. Sjóðurinn er að þessu sinni þrískiptur þar sem styrkja skal viðburðahald, samfélags- eða fegrunarverkefni sem efla samfélagið í Ísafjarðarbæ. Sjóðnum var komið á laggirnar í fyrrasumar og þá var aðeins viðburðahald styrkt, en nú er búið að útvíkka reglur sjóðsins og auka úthlutunarfé.
Umsóknarfrestur rann út síðastliðinn föstudag og alls bárust 61 umsókn þar sem sótt var um fyrir tæpar 36 milljónir króna. Nú er Úthlutunarnefnd komin á fullt að fara yfir umsóknir og má búast við niðurstöðu um næstu mánaðarmót.