Aðalfundur Menningarráðs Vestfjarða er haldinn föstudaginn 2. september 2011, í tengslum við Fjórðungsþing Vestfirðinga. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu í Bolungarvík og hefst kl. 17:15 eða eftir að störfum Fjórðungsþings er lokið á föstudegi.
Samkvæmt samþykktum Menningarráðs Vestfjarða velja sveitarstjórnir á starfssvæðinu fulltrúa sína á aðalfund Menningarráðsins og fara þeir með umboð viðkomandi sveitarstjórnar í samræmi við íbúafjölda viðkomandi sveitarfélags þann 1. desember árið áður. Aðalfund situr einnig stjórn Menningarráðsins hverju sinni og menningarfulltrúi.
Á aðalfundi skal samkvæmt samþykktum ráðsins taka fyrir eftirfarandi mál:
# Skýrsla stjórnar um starfsemi ráðsins á liðnu starfsári.
# Ársreikningur ráðsins fyrir liðið ár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda ef einhverjar eru.
# Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga. Skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna ráðsins.
# Ráðsstjórn leggur fram tillögur að fjárhagsáætlun næsta árs og breytingar á framlögum skv. samningi við ríkið.
# Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
# Önnur mál.
Ekki hafa komið fram tillögur að breytingum á samþykktum Menningarráðsins og fulltrúar í Menningarráð voru kjörnir til tveggja ára á síðasta aðalfundi.