Ákveðið hefur verið í samráði við stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga að boða til aðalfundar Menningarráðs Vestfjarða laugardaginn 4. september næstkomandi, í framhaldi af Fjórðungsþingi Vestfirðinga. Fundurinn verður haldinn á Hólmavík og hefst kl. 15:00, en nánari staðsetning verður kynnt síðar. Samkvæmt samþykktum Menningarráðsins velja sveitarstjórnir á starfssvæðinu fulltrúa á aðalfundar Menningarráðs Vestfjarða og fara þeir með umboð viðkomandi sveitarstjórnar í samræmi við íbúafjölda viðkomandi sveitarfélags þann 1. desember árið áður.
Á aðalfundi skal taka fyrir eftirfarandi mál:
-
Skýrsla stjórnar um starfsemi ráðsins á liðnu starfsári.
-
Ársreikningur ráðsins fyrir liðið ár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda ef einhverjar eru.
-
Kosin stjórn og varastjórn, og tveir skoðunarmenn reikninga. Skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna ráðsins.
-
Ráðsstjórn leggur fram tillögur að fjárhagsáætlun næsta árs og breytingar á framlögum skv. samningi við ríkið.
-
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
-
Önnur mál.
Á aðalfundinum verða að þessu sinni einnig teknar fyrir breytingar á samþykktum Menningarráðsins