Fjórðungssamband Vestfirðinga og Hópferðamiðstöð Vestfjarða ehf hafa samið um akstur á sérleyfinu Ísafjörður-Hólmavík-Ísafjörður. Fyrsta áætlunarferð verður ekin á föstudag 1. ágúst n.k. en síðan verður ekið á miðvikudögum og sunnudögum til 14. september n.k.. Eftir 14. september verður ekið á föstudögum og sunnudögum fram á vor 2015.
Ekið verður í takt við áætlun Strætó bs samkvæmt leið 59 til Hólmavíkur frá Borgarnesi (Reykjavík). Áætlunin er sem hér segir,
Frá Ísafirði : kl 16:00
Frá Súðavík : kl 16:20
Frá Heydals vegamótum kl: 17:35
Frá Reykjanesi : kl 17:45
Hólmavík koma; kl 18:50
Hólmavík brottför 19:30
Reykjanes brottför 20:35
Heydalur vegamót brottför 20:45
Súðavík brottför 22:00
Ísafjörður 22:20
Ekið er frá/ til biðskýli við Pollgötu, Ísafirði og að / frá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, Hólmavík. Ekið er um Pollgötu, Skutulsfjarðarbraut og Djúpveg 61 að Hólmavík, farþegar geta stigið af / á, í Súðavík, vegamót við Heydal (Mjóafjarðarvegur) og í Reykjanesi. Pantanir í ferðir verða fyrst um sinn hjá Hópferðamiðstöð Vestfjarða í síma 8931058 en síðar einnig í þjónustuborði Strætó bs.
Grundvöllur þessa samnings er einkaleyfi landshlutasamtaka sveitarfélaga, hér Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV), með vísan til ákvæða samnings um almenningssamgöngur á Vestfjörðum sem FV hefur gert við Vegagerðina dags. 30. júlí 2012. Nánar tiltekið ákvæði um einkaleyfi í 1. mgr. 7. gr. laga nr 73/2011 um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi.