Fara í efni

Alþjóðleg píanóhátíð haldin á Vestfjörðum í þriðja sinn

Fréttir
Antoinette Perry, Andrew J. Yang og Carl Zhang fyrir utan Hólmavíkurkirkju. 
Ljósmynd: Skúli Gautas…
Antoinette Perry, Andrew J. Yang og Carl Zhang fyrir utan Hólmavíkurkirkju. Ljósmynd: Skúli Gautason

Alþjóðlega píanóhátíðin á Vestjfjörðum hófst á sunnudag með tónleikum í Hólmavíkurkirkju.  Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin en að þessu sinni leika þau Andrew J. Yang, Antoinette Perry og Carl Zhang. Þau eru öll margreyndir píanóleikarar og hafa leikið á hátíðum út um allan heim.  Á efnisskrá eru bæði ný og eldri verk, eftir Karen Tanaka, Johannes Brahms og Robert Schumann. 

Næstu tónleikar verða í Félagsheimilinu á Patreksfirði miðvikudaginn 21. ágúst kl. 20:00. 
Aðgangur er ókeypis.

Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.