Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina

Fréttir

Menningarverðlaunin Eyrarrósin verður veitt í ellefta sinn í mars næstkomandi, fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Umsækjendur um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð og það eru Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem staðið hafa saman að verðlaununum frá upphafi árið 2005.

 

Tíu verkefni verða valin á Eyrarrósarlistann og þrjú þeirra hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar ásamt peningaverðlaunum og flugmiðum frá Flugfélagi Íslands. Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.650.000 kr. Hin tvö hljóta 300.000 kr. og auk þess fá öll þrjú tilnefndu verkefnin flugmiða með Flugfélagi Íslands.

 

Umsóknarfrestur er til miðnættis 8. febrúar 2015 og verður öllum umsóknum svarað. Umsóknir skal senda rafrænt til Listahátíðar í Reykjavík á netfangið eyrarros@artfest.is.

 

Meðal handhafa Eyrarrósarinnar eru Strandagaldur á Hólmavík og Aldrei fór ég suður - rokkhátíð alþýðunnar.