Vestfjarðastofa stendur fyrir fjöruferðum. Hinrik Carl Ellertsson matreiðslumeistari og Eydís Mary Jónsdóttir land- og umhverfisfræðingur, höfundur bókarninnar Íslenskir Matþörungar, munu bjóða gestum og gangandi í fjörumó og leiða þá inn í gómsætan heim íslenskra matþörunga. Þau munu kenna hvernig þekkja má algengustu matþörungana, hvernig má tína þá og verka á sjálfværan hátt ásamt því að gefa hugmundir að því hvernig má nota þá í matargerð.
Farnar verða þrjár fjöruferðir á Vestfjörðum
Föstudagur: Hólmavík
- Mæting í Húsavík, við Steingrímsfjörð kl 16:00
Laugardagur: Ísafjörður
- Mæting við Arnarnes, í Skutulsfirði, farið niður í fjöru fyrir neðan Fjósið í Arnardal kl 15:15
Sunnudagur: Vatnsfjörður, Barðaströnd
- Mæting á bílastæðið við Gíslahelli, Hörgsnesi kl 13:30
Þátttakendur eru hvattir til að mæta tímalega og klæða sig eftir veðri, vera í vatnsheldum skóm, helst stígvélum, og hafa með sér poka til að safna í.
Þátttaka ókeypis og þátttakendur eru hvattir til að virða 2 metra regluna