17. nóvember 2021
Fréttir
Westfjords Food
Samfélags- og nýsköpunarmiðstöðvar
Sérfræðingar frá KPMG og KPMG Law í samstarfi við Vestfjarðastofu bjóða fræðslufund og ráðgjöf á Ísafirði mánudaginn 29. nóvember kl. 12:00-13:30 í húsnæði Vestfjarðastofu að Suðurgötu 12, Ísafirði. Hámarksfjöldi gesta á fundinn er 40 manns og er grímuskylda.
Umræðuefni fundarins eru eftirfarandi:
- Stofnun fyrirtækja og mismunandi skattlagning rekstrar
- Covid-19 úrræði stjórnvalda
- Nýsköpunarstyrkir og ívilnanir til fjárfestinga í nýsköpun
Skráning á fræðslufundinn kl. 12:00-13:30 er hér
Eftir fræðslufundinn geta fyrirtæki og einstaklingar fengið ráðgjöf sér að kostnaðarlausu hjá sérfræðingum KPMG.
Bóka þarf tíma í ráðgjöf með því að senda tölvupóst á netfangið audur@vestfirdir.is eða hringja í síma 450-6614.