Fara í efni

22 umsóknir í verkefnasjóð Púkans

Fréttir Barnamenningarhátíðin Púkinn

Púkinn, barnamenningarhátíð á Vestfjörðum, verður haldin dagana 31. mars til 11. apríl. Í desember var opnað fyrir umsóknir um verkefnastyrki og var hægt að sækja um til 23. janúar. 22 spennandi umsóknir bárust og sinnir úthlutunarnefnd nú því vandasama verki að ákvarða styrkveitingar. Von er á niðurstöðum hennar í næstu viku.

Undirbúningur er kominn á fullt skrið og vonumst við til að hátíðin verði sem ánægjulegust fyrir börn um alla Vestfirði. Ef þið lumið á hugmyndum um dagskrárliði hvetjum við ykkur til að láta slag standa og við getum orðið að liði við að móta hugmyndina eða verið til halds og trausts ef þess er þörf. Mikilvægur liður í að vel takist til er að allir leggist saman á árarnar til að skapa góða hátíð. Þannig má tryggja hana í sessi og auka aðgengi vestfirskra barna að listum og menningu sem getur lifað með þeim um langa tíð.

Breytingar eru að eiga sér stað á verkefnisstjórn Púkans en Vilborg Pétursdóttir tekur við stjórnartaumunum af Skúla Gautasyni sem verður þó áfram í vinnuhóp Púkans auk Önnu Sigríðar Ólafsdóttur.

Allar helstu upplýsingar um Púkann er að finna á heimasíðu okkar www.vestfirdir.is/pukinn og verður dagskrá þar að finna þegar nær dregur. Við hvetjum öll til að fylgjast með og taka þátt hvar sem því verður við komið.