Drög að Sóknaráætlun Vestfjarða 2020-2024, á vegum Vestfjarðastofu og Fjórðungssambands Vestfirðinga er nú kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Mótun nýrrar sóknaráætlunar var unnin í nánu samráði við aðila í landshlutanum. Íbúafundir voru haldnir víðsvegar í landshlutanum og tóku um 150 íbúar þátt í fundunum.
Afurð fundanna voru megináherslur íbúa sem lagðar voru til nánari úrvinnslu á fundi samráðsvettvangs. Samráðsvettvangurinn er skipaður 45 einstaklingum, sveitastjórnarfólki og íbúum skipuðum af sveitarfélögunum níu á Vestfjörðum. Á þeim fundi var markmiðum forgangsraðað og þau tengd Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Ákveðið var að skipta sóknaráætluninni í fjóra málaflokka:
1) atvinna og nýsköpun
2) menntun
3) menning
4) umhverfi og skipulag.
Eru það jafnframt fjögur meginmálefni sjálfbærrar þróunar.
Tekin verður grunnstaða í öllum mælanlegum markmiðum 1. janúar 2020 og reglulega fylgst með stöðunni út tímabilið. Afurðin er drög að Sóknaráætlun Vestfjarða 2020-2024, sem er landshlutabundin byggðaáætlun Vestfjarða. Stefnan mun stýra ákvörðun um val á áhersluverkefnum og úthlutun styrkja úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.
Drög að Sóknaráætlun Vestfjarða 2020 til 2024 er nú kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og verður opið fyrir athugasemdir og ábendingar til og með 16. október næstkomandi. Íbúar og aðrir hagaðilar eru hvattir til að kynna sér nýja sóknaráætlun landshlutans.
Hægt er að finna drögin hér