Fara í efni

Evrópurútan - á ferð um landið

Fréttir

Í tilefni þess að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi. Evrópurútan verður í húsakynnum Vestfjarðastofu á Ísafirði þriðjudaginn 24. september frá 14-16. 

Um er að ræða kynningu á samstarfsáætlunum ESB á sviði menntunar, menningar, rannsókna, nýsköpunar og æskulýðsstarfs, mun Evrópurútan hitta fjölbreytta markhópa á hverjum viðkomustað. Kynningin er öllum opin en nauðsynlegt er að skrá sig.

Evrópurútan er skipulögð af Rannís sem hefur umsjón með öllum helstu samstarfsáætlunum á sviði menntunar, menningar, rannsókna, nýsköpunar, umhverfismála, stafrænnar færni og fyrirtækjasamstarfs, auk norræns samstarfs og mun á hringferð sinni um landið veita upplýsingar um:

  • Erasmus+
  • Stoðverkefni Erasmus+: eTwinning, Europass, Eurodesk og EPALE
  • Horizon Europe
  • Creative Europe
  • European Solidary Corps
  • Enterprise Europe Network
  • Digital Europe
  • LIFE
  • Nordplus

Óhætt er að segja að evrópsk tækifæri hafi verið nýtt vel hér á landi og haft víðtæk áhrif á samfélagið og viljum við tryggja að þær nýtist í öllum byggðum landsins með sínar fjölbreyttu þarfir og styrkleika.

Aðgangur að viðburðum Evrópurútunnar er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!

Frekari upplýsingar er að finna hér

 

 Óskað er eftir skráningu á viðburðina fyrir áætlun veitinga á hverjum stað fyrir sig.

Skráning á viðburð

Skoða á viðburðardagatali