Ferðaþjónustuvikan 2025 hófst í dag og stendur hún fram á fimmtudag. Viðburðurinn er ekki nýr af nálinni og sem fyrr er þar lögð áhersla á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá. Aðstandendur Ferðaþjónustuvikunnar eru Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.
Dagskrá Ferðaþjónustuvikunnar 2025:
14. JANÚAR:
Kl. 8:30-10:00: Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar - KPMG Borgartúni
Kl. 13:00-14:30: Markaðssamtal ferðaþjónustunnar - Gróska
Kl. 14:30-16:00: MICELANDKynningarvettvangur - Gróska
15. JANÚAR
Kl. 9:30-12:00: Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu - Gróska
Kl. 12:30-14:50: Ferðatæknimót - Hótel Natura
Kl. 15:00-17:00: Hvað vitum við um slys í ferðaþjónustu? - Hótel Natura
16. JANÚAR
Kl. 12:00-17:00: Mannamót markaðsstofa landshlutanna - Kórinn
Kl. 20:00-21:30: Lokaviðburður - Telebar Parliament Hotel
Við vekjum sérstaklega athygli á Mannamótum markaðsstofanna, en í ár er metfjöldi sýnenda frá Vestfjörðum og munum við fjalla betur um það síðar.