Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar - leit að jafnvægi milli verndar og nýtingar
Enn leika veðurguðirnir okkur grátt og vekjum við athygli á breyttum tímasetningum á upplýsinga- og umræðufundum á Birkimel og Laugum, sem verða nú sem hér segir:
- Mánudaginn 25. mars, kl. 17 - 19.30 í Dalahóteli, Laugum í Sælingsdal.
- Þriðjudaginn 26. mars, kl. 17 - 19.30 á Félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd.
Kynnt verður verkefni, sem hófst árið 2022 um forsendugreiningu fyrir verndun Breiðafjarðar með tilliti til byggðaþróunar og sjálfbærrar nýtingar. Markmið fundarins er að heyra sjónarmið íbúa og hagaðila, stýrihópi verkefnisins til upplýsinga, en hann mun síðan gera tillögur til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Dagskrá (sjá skjöl í virkum hlekkjum):
Inngangur og stöðugreining: Sigríður Finsen, formaður stýrihóps
Hagrænt virði Breiðafjarðar: Vífill Karlsson, hagfræðingur hjá SSV
Sviðsmyndagreining KPMG: Aðalsteinn Óskarsson, Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Páll S. Brynjarsson, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi
Drög að tillögum stýrihóps kynnt
Umræður í litlum hópum
Samantekt niðurstaðna
Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Fundaumsjón: Sigurborg Kr. Hannesdóttir, hjá ILDI.