22. nóvember 2018
Fréttir
Líkt og við sögðum frá um daginn fékk Oddi hf. á Patreksfirði viðurkenningu Creditinfo fyrir framúrskarandi fyrirtæki. Sjö önnur fyrirtæki á Vestfjörðum fengu líka viðurkenningu en þau eru:
- Birnir ehf. í Bolungarvík, framkvæmdastjóri Sigríður Rósa Símonardóttir
- Endurskoðun Vestfjarða ehf. Bolungarvík, framkvæmdastjóri Elín Jónsdóttir
- A.Ó.A. útgerð ehf. Ísafirði, framkvæmdastjóri Aðalsteinn Ómar Ásgeirsson
- Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar ehf. Ísafirði, framkvæmdastjóri Hafsteinn Ingólfsson
- Vestri ehf. Ísafirði, framkvæmdastjóri Gísli Jón Hjaltason
- Útgerðarfélagið Skúli ehf. Drangsnesi, framkvæmdastjóri Óskar Torfason
- Vélsmiðjan Þristur ehf. Ísafirði, framkvæmdastjóri Kristinn Mar Einarsson
Vestfjarðastofa óskar þeim hjartanlega til hamingju með þessa viðurkenningu.
Alls voru 857 framúrskarandi fyrirtæki á lista Creditinfo eða 2% allra skráðra fyrirtækja í landinu.