Fara í efni

Frestur til að sækja um stuðning Húsafriðunarsjóðs að renna út

Fréttir

Frestur til að sækja um styrk í Húsafriðunarsjóð er að styttast, en hægt er að sækja um fram til 1. desember ár hvert. Úr Húsafriðunarsjóði eru veittir styrkir til margvíslegra verkefna sem tengjast ráðgjöf og áætlunargerð vegna viðhalds á friðuðum húsum og mannvirkjum og einnig til beinna viðhaldsverkefna. Þá er nefndinni heimilt að styrkja ráðgjöf og áætlunargerð vegna viðhalds á öðrum húsum og mannvirkjum en þeim sem eru friðuð, ef þau hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi. Hið sama gildir um viðhaldið sjálft á slíkum mannvirkjum. Eins styrkir sjóðurinn gerð og útgáfu bæja- og húsakannana og aðrar byggingarsögulegar rannsóknir og útgáfu rita um þær. Umsóknareyðublað og leiðbeiningar finna menn á www.husafridun.is.