06. nóvember 2024
Fréttir
Örlítill dráttur hefur orðið á útgáfu á fréttabréfi Vestfjarðastofu að þessu sinni - en eigi skal örvænta - því það er nú komið hér á vefinn stútfullt af efni eftir annasaman októbermánuð. Að venju er pistill frá framkvæmdastjóra en að þessu sinni er einnig að finna pistil frá Gylfa Ólafssyni, nýjum formanni stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga og Vestfjarðastofu. Október er iðulega fullur af margskonar verkefnum og nær blaðið ekki að fanga þau öll, en það er þó fullt af alls kyns áhugaverðum viðfangsefnum Vestfjarðastofu og segjum við því bara gleðilegan lestur!