Laust er til umsóknar við Grunnskólann á Suðureyri starf kennara. Um er að ræða 100% starf við kennslu á miðstigi s.s. í heimilisfræði, áhugasviði og smiðju.
Í dag eru nemendur Grunnskóla Suðureyrar rúmlega 30. Einkunnarorð skólans eru ástundun, árangur og ánægja. Í skólanum er unnið með Uppbyggingarstefnu í öllum samskiptum, verið er að innleiða leiðsagnarnám og lögð er áhersla á að kennarar fikri sig áfram á sviði tækni- og nýsköpunar. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2025.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu samkvæmt markmiðum aðalnámskrár og stefnu skólans
- Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið grunnskólalaga og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni
- Fylgist með námi, þroska og félagslegu gengi nemenda sinna.
- Hefur forgöngu um aðgerðir ef eitthvað bregður út af varðandi nám eða annað
- Sér um vitnisburð og skýrslugerð varðandi nemendur.
- Fylgist með skólasókn nemenda og skráir hana samkvæmt fyrirmælum
- Er í samstarfi við foreldra og samfélag eftir því sem viðeigandi er
Menntunar og hæfniskröfur:
- Kennsluréttindi í grunnskóla
- Jákvæðni, lipurð og færni í samskipum og skipulagsfærni
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk stundvísi og samviskusemi
- Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti
- Góð færni á sviði tækni og nýsköpunar er æskileg
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknum skal skilað til Vilborgar Ásu Bjarnadóttur skólastjóra á netfangið vilborgbj@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af leyfisbréfi og prófskírteinum. Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2025. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 450-8395 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
-Við þjónum með gleði til gagns-