Hvað er samfélagsleg nýsköpun? Við leitumst við að svara því á fundi á Teams þann 12. júní kl. 12. Stefanía Kristinsdóttir fjallar þar um samfélagslega nýsköpun og hversvegna hún er mikilvæg fyrir dreifðar byggðir.
Hér á landi hefur umræðan um mikilvægi samfélags frumkvöðla verið takmörkuð og og aðgerðir til að veita þeim stuðning þar af leiðandi verið takmarkaðar. Innan samfélaga er iðulega að finna verkefni sem hið opinbera og einkageirinn nær ekki yfir. Verkefni sem eru á hendi frumkvöðla sem vilja gera gagn og styðja við þróun á sínu svæði. Samfélags frumkvöðlar stefna að sameiginlegum ávinningi samfélagsins og eru því mikilvægir þar sem þeir bera oft kennsl á tækifæri og áskoranir sem stjórnvöld og rótgróið atvinnulíf takast ekki á við.
Vestfjarðastofa er þáttakandi í verkefninu MERSE, Business Models Empowering Rural Social Entrepreneurship voicing the rural norm. Markmið MERSE er að þróa viðskiptamódel, stuðningskerfi og umgjörð fyrir samfélags-frumkvöðla sem annað hvort vilja stofna eða þróa samfélagsdrifin verkefni í dreifðum byggðum.
MERSE verkefnið er stutt af Norðurslóðaáætluninni (NPA)
Dagskrá
Stefanía Kristinsdóttir frá Einurð: Hvað er Samfélagsleg nýsköpun?
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir frá Vestfjarðastofu: MERSE, Evrópuverkefni um samfélagslega nýsköpun
Þrjú vestfirsk verkefni á sviði samfélagslegrar nýsköpunar eru þátttakendur í MERSE og munu aðilar frá þeim vera með stuttar kynningar:
Heiða hjá Netagerðinni á Ísafirði
Anna Björg hjá Galdrasýningunni á Hólmavík og
Birta hjá Skriðu á Patreksfirði.
Öll áhugasöm velkomin