Vestfjarðastofa stendur fyrir viðhorfskönnun um fiskeldi og samgöngumál á Vestfjörðum. Markmið könnunarinnar er að fá fram væntingar og viðhorf Vestfirðinga í þessum mikilvægu málaflokkum. Þetta er einn liður í stóru verkefni hjá Vestfjarðastofu um mótun framtíðarsýnar í fiskeldi.
Stefnt er að því að endurtaka könnunina á tveggja ára fresti næstu ár til að fylgjast með mögulegum breytingum á væntingum og viðhorfum í þessum tveimur málaflokkum eftir því sem þeir munu þróast á næstu árum. Könnunin er nafnlaus og verða niðurstöður nýttar meðal annars í stefnumótun sveitarfélaga og svæðisins alls.
Könnunin er á íslensku, ensku og pólsku svo að sem flestir Vestfirðingar geti tekið þátt.
Við viljum hvetja alla sem fá könnunina senda í tölvupósti til að taka þátt og hafa með skoðunum sínum áhrif á framtíð Vestfjarða.
Nánari upplýsingar um framkvæmd könnunarinnar veitir verkefnisstjóri hjá Vestfjarðastofu Guðrún Anna Finnbogadóttir í netfanginu gudrunanna@vestfirdir.is.