Miðvikudaginn 3. febrúar voru Samtök iðnaðarins og Rannís með rafræna kynningu á Tækniþróunarsjóði. Þar var farið ýtarlega yfir alla styrkjaflokka og skattafrádrætti vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar, reglugerð um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga.
Sjóðurinn hefur um 3,6 milljarða króna til úthlutunar á árinu 2021.
Styrkir í boði
Einkaleyfisstyrkir – Ýta undir að frumkvöðlar og fyrirtæki verji hugverk sitt.
Opið allt árið fyrir umsóknir.
- Opin öllum sem vilja verja hugverk sitt með einkaleyfi
- Hámarksstyrkur 300 þúsund.
- Alþjóðleg umsókn – Hámarksstyrkur 1,2 mkr.
- Sjóðurinn tekur þátt í allt að 50%
Fræið -Opnar fyrir umsóknir seinnipart febrúar 2021
- Verkefni sem eru komin mjög stutt á leið og eru á hugmyndastigi. Fyrirtæki þurfa að vera yngri en 5 ára.
- Hægt að sækja um allt að 2 milljónir fyrir verkefni.
- Vinna að þróun hugmyndar í nokkra mánuði til að geta sótt eftir stærri styrkjum eins og t.d. Sporta
- Ekki krafist mótframlags.
Sporti næsti umsóknarfrestur er 15. mars 2021
- Markmið að styðja við einstaklinga og ung fyrirtæki.
- Fyrirtæki þurfa að vera yngri en 5 ára.
- Stuðningur getur verið allt að 10 m á ári í allt að tvö ár.
- Ekki krafist mótframlags
- Leyfilegur kostnaður í markaðsvinnum má vera allt að 10% af heildarkostnaði verkefnisins eins og hann er skilgreindur í umsókn.
Vöxtur – fyrirtækjastyrkur næsti umsóknarfrestur er 15. mars 2021
- Vöxtur er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar
- Hámarkstyrkur getur numið allt að 50 milljónum króna á tveimur árum, þó ekki meira en 25 milljónum króna á hvoru ári
- Krafist mótframlags á móti styrkjum (breytilegar eftir stærð fyrirtækja og tegund verkefnis)
- Leyfilegur kostnaður í markaðsvinnum má vera allt að 20% af heildarkostnaði verkefnisins eins og hann er skilgreindur í umsókn
Sprettur næsti umsóknarfrestur er 15. mars 2021
- Styrkja lítil eða meðalstór fyrirtæki með frammúrskaranleg verkefni
- Hámarksstyrkur getur numið allt að 70 milljónum króna á tveimur árum, þó ekki meira en 35 milljónum króna á hvoru ári
- Rík krafa er um að fjárhagslegt bolmagn til að framkvæma verkefnið
- Leyfilegur kostnaður í markaðsvinnum má vera allt að 25% af heildarkostnaði verkefnisins eins og hann er skilgreindur í umsókn
Markaðsstyrkur- næsti umsóknarfrestur er 15. mars 2021
- Markmið er að styrkja lítil og meðalstór fyrirtæki með lágmarki 10% í R&Þ af rekstrargjöldum samkvæmt síðasta reikningsári
- Stuðningur getur verið allt að 10 mkr. til eins árs.
- Mótframlagskraf er 50% af heildarkostnaði við verkefnið
- Leyfilegur kostnaður er tengdur í markaðsvinnum fyrirtækisins
Vestfjarðastofa hvetur einstaklinga, rannsóknaraðila og fyrirtæki að kynna sér betur þessi mál á síðu Rannís