15. október 2012
Fréttir
Skipulagsstofnun mun í október og byrjun nóvember halda kynningarfundi víða um land þar sem kynnt verður tillaga að landsskipulagsstefnu 2013 – 2024 sem auglýst hefur verið samkvæmt 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fundað verður á Ísafirði 25. október kl. 13:00 í Bryggjusal Edingborgarhússins.
Á kynningarfundunum munu Stefán Thors og Einar Jónsson kynna:
- Markmið og áhrif landsskipulagsstefnu og staða í skipulagskerfinu
- Ferli landsskipulagsstefnu og samráð
- Áherslur ráðherra fyrir gerð landsskipulagsstefnu
- Helstu forsendur, sviðsmyndir og afmörkun stefnumótunar
- Stefna
- Skipulagsmál á miðhálendi Íslands
- Búsetumynstur og dreifing byggðar
- Skipulag á haf- og strandsvæðum
- Umhverfismat landsskipulagsstefnu 2013-2024