Fara í efni

Landsskipulagsstefna og skipulagsgerð sveitarfélaga

Fréttir

Skipulagsstofnun kynnir auglýsta tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 á opnum fundi í Háskólasetrinu Ísafirði miðvikudaginn 14. janúar 2014 kl. 12.30-14.30. Á fundinum verður tillagan kynnt auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags. Jafnframt verður bein útsending frá kynningu í Reykjavík þann 29. janúar kl. 15-17 og má sjá hana á heimasíðu Skipulagsstofnunar.

 

Tillöguna, ásamt umhverfismati og fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, má nálgast á www.landsskipulag.is og www.skipulagsstofnun.is, en frestur til að skila athugasemdum er til 13. febrúar 2015.