27. mars 2025
Störf í boði
Getur þú tekið vaktina í sumar í Lyfju Ísafirði
Við leitum af starfsmanni í verslun Lyfju á Ísafirði. Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðleggingum til viðskiptavina okkar um kaup á vörum verslunarinnar. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf þar sem í boði eru samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Áfyllingar í verslun
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Verslunin er opin frá 10-18 virka daga og frá 11-14 á laugardögum. Nánari upplýsingar veitir Jónas Þ. Birgisson, lyfsali í s. 456 3009 | jonas@lyfja.is.Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.