Fara í efni

Markaðsdeild Fjórðungssamband Vestfirðinga auglýsir eftir styrkumsóknum frá hátíðum og viðburðum á Vestfjörðum fyrir 2013

Fréttir

Markaðsdeild Fjórðungssambands Vestfirðinga auglýsir eftir styrkumsóknum til markaðssetningar á viðburðum og hátíðum á Vestfjörðum árið 2013. Styrkirnir eru fjármagnaðir úr Sóknaráætlun landshluta.

 

Styrkjunum er ætlað að vekja athygli á þeim hátíðum og viðburðum sem þegar eru haldnar á Vestfjörðum og styðja við ímynd Vestfjarða. 

 

Við úthlutun styrkja fyrir 2013 verður sérstaklega horft til eftirfarandi þátta:

  • Dregur að ferðamenn utan háanna tíma og/eða lengir ferðamannatímabilið
  • Stærð viðburðar/hátíðar
  • Aldur viðburðar/hátíðar
  • Svæðisbundin áhrif viðburðar/hátíðar 
  • Efnahagslegt vægi viðburðar/hátíðar
  • Samfélagslegt vægi viðburðar/hátíðar

Umsóknarfrestur um verkefnastyrki er til og með 15. júní 2013.  
Umsóknareyðublaðið má finna hér.

Allar nánari upplýsingar gefur Díana Jóhannsdóttir markaðsfulltrúi Markaðsstofu Vestfjarða í síma 450-3002 eða í netfanginu diana@vestfirdir.is.