17. ágúst 2019
Fréttir
Westfjords Food
Vestfjarðastofa og Matarauður Íslands, verkefni á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins hafa gert með sér samning um eflingu matartengdrar ferðaþjónustu og matarupplifunar á Vestfjörðum. Samstarfssamningur vegna verkefnisins var undirritaður fimmtudaginn 15. ágúst.
Með stuðningnum er markmiðið að vinna að þróun matarupplifunar á Hringvegi 2 þar sem markmiðið er að nýta matarauð Vestfjarða, draga fram matarsérkenni svæðisins og byggja upp gæðaímynd um mat á Vestfjörðum.
Verkefnið er einn þáttur í verkefninu "Westfjords Food" sem er eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Vestfjarða.
Verkefnisstjóri verkefnisins er Þórkatla Soffía Ólafsdóttir.