Fara í efni

Meðbyr viðmið við mótun Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050

Fréttir Svæðisskipulag Vestfjarða

Svæðisskipulag Vestfjarða verður fyrsta heildstæða skipulagsáætlunin um þróun samfélags á Vestfjörðum og að því standa öll sveitarfélögin á Vestfjörðum í gegnum Fjórðungssamband Vestfirðinga. Það er VSÓ ráðgjöf og Úrbana skipulagsráðgjöf sem sjá um gerð Svæðisskipulags Vestfjarða fyrir Fjórðungssambandið og svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða.

Lýsing svæðisskipulagsins var lögð út til kynningar og samráðs á fyrri hluta síðasta árs. Nú í lok desember voru gefin út frumdrög Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050 sem lýsa niðurstöðu þessa samráðs við íbúa og aðra aðila, ljóst er að trú íbúa og sveitarfélaga er að vöxtur samfélaga og atvinnulífs á Vestfjörðum á síðustu árum muni halda áfram með fjölgun íbúa, eflingu innviða og öflugra atvinnulífi.

Við gerð frummatsins var ákveðið að vinna með ólíka valkosti samfélagsþróunar næstu 25 árin, byggða á spám um mannfjöldaþróun. Í frumdrögunum er að finna umfjöllun um þær framtíðarmyndir sem lagðar voru til grundvallar í skipulagsvinnunni. Þær voru upphaflega fimm og vísaði heiti þeirra til veðrabrigða: mótvindur, andvari, meðbyr, gustur og ofsi. Þessar framtíðarmyndir voru svo speglaðar við sviðsmyndir sem voru unnar fyrir Vestfirði, „Vestfirðir á krossgötum“ og við lýðfræðilega þróun samfélaga á Íslandi og Norðurlöndum. Á samráðsfundum með íbúum sem haldnir voru víðvegar um Vestfirði á nýliðnu ári völdu íbúar hvaða framtíðarmynd þeir töldu líklegasta til að raungerast og hvaða þeir myndu helst vilja sjá rætast. Meðbyr þótti líklegastur til að raungerast og spá um mannfjöldaþróun verði hin sama og á landsvísu og gerir m.a. ráð fyrir að íbúum hafi fjölgað um 38% árið 2050. Það sem íbúar vildu helst sjá rætast var gustur, en hann kveður m.a. á um íbúafjölgun um 2,5% ár hvert sem er umfram mannfjöldaspá á landsvísu. Með þessa niðurstöðu voru framtíðarmyndirnar mótvindur og ofsi teknar út og unnið áfram með andvara, meðvind og gust.

Á 69. Fjórðungsþingi Vestfirðinga sem haldið var í Bjarnafirði sl. haust, kaus vestfirskt sveitarstjórnarfólk um andvara, meðbyr og gust til að verða viðmið við mótun svæðisskipulagsins. Óhætt er að segja að kosningin hafi verið æsispennandi. Andvari komst ekki á blað, en meðbyr sigraði með 51% greiddra atkvæða og gustur kom fast á hæla hans með 49%.

Frumdrög svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050 má nálgast hér. Frumdrögin munu nú leggja línurnar hver verða næstu skref í mótun svæðisskipulagsins og hvernig á að útfæra stefnumótun í samræmi við framtíðarsýn og lykilatriði frumdraganna. Markmiðið er að móta Vestfirði til framtíðar sem framúrskarandi samfélag, þar sem lífsgæði, öflugt atvinnulíf, náttúruvernd og þjónusta eru í fyrirrúmi.