Menntamálaráðuneyti, Iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga boða til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí í samstarfi við menningarráðin á landsbyggðinni. Fjallað verður um reynsluna af menningarsamningum ríkis og landshlutasamtaka sveitarfélaga og spurt hver árangur hafi orðið og hvert beri að stefna. Hvernig getum við nýtt okkur menningu og menningartengda ferðaþjónustu til nýrrar sóknar í nýsköpun og nýtingu menningararfs? Menningarráðin á landsbyggðinni kynna starfsemi sína og bjóða upp á fjölbreytt sýnishorn skapandi menningar. Fróðleg erindi og spennandi viðburðir.
DAGSKRÁ
Mánudag 11. maí
Kl. 12:00 Trommusveitin í Stykkishólmi býður gesti velkomna
Ávarp ráðherra
Landshlutapóstur frá Menningarráði Vesturlands og Vestfjarða
Kl. 12:40 Dögg Mósesdóttir: Framtíðarfjárfestingin menning
Kl. 13:00 Leikatriði frá Ungmennafélaginu Íslendingi í boði Menningarráðs Vesturlands
Stutt hlé
Kl. 13:30 Elísabet Indra Ragnarsdóttir: „Við verðum að læra að sjá meira, heyra meira, skynja meira ..."
Kl. 13:50 Hjálmar H. Ragnars: Skapandi kraftur
Kl. 14:10 Jón Hrólfur Sigurjónsson: „Hér er hægt að fá brjálaðar hugmyndir og láta þær gerast!"
Kl. 14:30 Spurningar og svör um menningaruppeldi og listfræðslu
Stutt hlé
Kl. 15:00 Tónlistarperlur: Alexandra Chernyshova sópran, Þórhallur Barðason barinton og Tom R. Higgerson píanóleikari flytja. Tónlistaratriði í boði Menningarráðs Norðurlands vestra
Kl. 15:15 Landshlutapóstur frá Menningarráði Norðurlands vestra
Kl. 15:30 Þór Sigfússon: Um þýðingu lista og menningar í íslensku athafnalífi
Stutt hlé
Kl. 16:10 Menningarlandið 2009: Höfum við gengið til góðs: Guðrún Helgadóttir og Signý Ormarsdóttir flytja hugleiðingu um reynslu og árangur af menningarsamningum ríkis og sveitarstjórna. Að erindum þeirra loknum taka þær þátt í pallborði ásamt Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra á Dalvík og fulltrúum frá iðnaðar- og menntamálaráðuneytum.
Kl. 17:15 Sameiginleg upplifunarferð með ævintýrasiglingu. Sturla Böðvarsson segir frá sögu og skipulagi gamla miðbæjarins í Stykkishólmi og gengið verður fylktu liði gegnum gamla bæinn, niður á höfn og um borð í bát sem siglir með gesti um Breiðafjörð. Boðið verður upp á ferskt sjávarfang um borð.
Kl. 19:45 Fordrykkur í boði Stykkishólmskaupsbæjar í Vatnasafninu.
Kl. 21:00 Kvöldverður með næringu fyrir líkama og sál. Þjóðlagasveitin frá Akranesi, Stefán Benedikt Vilhelmsson leikari, Þórunn Gréta Sigurðardóttir píanóleikari og Kómedíuleikhúsið frá Ísafirði verða meðal skemmtiatriða.
Þriðjudag 12. maí
Kl. 09:30 Svanhildur Konráðsdóttir: Menning - mikilvægur drifkraftur í ferðaþjónustu
Kl. 09:50 Landshlutapóstur frá Menningarráði Eyþings
Kl. 10:05 Stuttmyndafestivalið Stulli - verðlaunamynd og bjartasta vonin 2008 í boði Menningarráðs Eyþings
Kl. 10:15 Dansgjörningur í boði Menningarráðs Eyþings: Anna Richardsdóttir
Kl. 10:30 Landshlutapóstur frá Menningarráði Suðurlands
Kl. 10:45 Þjóðlagasveitin Korka í boði Menningarráðs Suðurlands
Stutt hlé
Kl. 11:20 Sigríður Sigurjónsdóttir: Stefnumót Bænda og hönnuða
Kl. 11:40 Sólveig Ólafsdóttir: Meyjarhumar og hákarl
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:00 Viðar Hreinsson: Menningararfur og sjálfsmynd Íslendinga
Kl. 13:20 Hjálmar Sveinsson: Skipulag er menning
Kl. 13:40 Umræður
Stutt hlé
Kl. 14:20 Landshlutapóstur frá Menningarráði Austurlands
Kl. 14:35 Brynhildur Guðjónsdóttir: Í fáum orðum
Kl. 15:00 Jón Jónsson: Rótað í framtíðinni
Kl. 15:20 Ávarp ráðherra
Kl. 15:30 Lúðrasveit Stykkishólms og Akraness kveður gesti