Fara í efni

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir styrkumsóknum - frestur til 13. júní 2014

Fréttir

Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú eftir umsóknum um styrki á grundvelli menningarsamnings ríkisins við Fjórðungssamband Vestfirðinga og er frestur til að sækja um til og með 13. júní 2014. Styrkir verða veittir í tveimur flokkum, annars vegar stofn- og rekstrarstyrkir og hins vegar verkefnastyrkir. Tilgangurinn er að efla menningarstarfsemi á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli. Umsækjendum er bent á að kynna sér vandlega úthlutunarreglur undir tenglunum Menningarráð Vestfjarða -> Styrkir hér til hliðar og undir þeim tengli má einnig nálgast eyðublöð, bæði á word-formi og rafræn. 

STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR  

Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú í þriðja skipti eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur vandlega undir tenglinum Menningarráð Vestfjarða -> Styrkir hér til vinstri. Umsækjendur þurfa að skila ítarlegum upplýsingum um starfsemi sína, þar á meðal síðasta ársreikningi. Umsóknarfrestur um stofn- og rekstrarstyrki er til og með 13. júní 2014.  

VERKEFNASTYRKIR

Jafnframt er auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki. Hægt er að sækja um stuðning við hverskyns menningarverkefni, en til hliðsjónar eru úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Allar nánari upplýsingar og umsóknarblöð er hægt að finna undir tengli hér til vinstri: Menningarráð Vestfjarða -> Styrkir. Fylgiskjöl með umsóknum um verkefnastyrki eru afþökkuð, allt sem skiptir máli á að koma fram í umsókninni sjálfri. Umsóknarfrestur um verkefnastyrki er til og með 13. júní 2014.   

Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.