Fara í efni

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir styrkumsóknum - frestur til 22. febrúar 2013

Fréttir

Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú eftir umsóknum um styrki í tveimur flokkum á grundvelli menningarsamnings ríkisins við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli. Umsækjendum er bent á að kynna sér vandlega úthlutunarreglur undir tenglinum "Styrkir" hér til hliðar og undir þeim tengli má einnig nálgast eyðublöð, bæði á word-formi og rafræn. 

STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR  

Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú í annað skipti eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur vandlega undir tenglinum Styrkir hér til hægri. Umsækjendur þurfa að skila ítarlegum upplýsingum um starfsemi sína, þar á meðal síðasta ársreikningi. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun stofn- og rekstrarstyrkja 2013 verði horft sérstaklega til umsækjenda sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:   

# Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna og/eða menningararfs.
# Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi.
# Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu.  

Umsóknarfrestur um stofn- og rekstrarstyrki er til og með 22. febrúar 2013.  

VERKEFNASTYRKIR

Jafnframt er auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki, en vakin er athygli á að á árinu 2013 verður aðeins auglýst eftir verkefnastyrkjum í þetta eina skipti. Hægt er að sækja um stuðning við hverskyns menningarverkefni, en til hliðsjónar eru úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Fylgiskjöl með umsóknum um verkefnastyrki eru afþökkuð, allt sem skiptir máli á að koma fram í umsókninni sjálfri. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun verkefnastyrkja 2013 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:  

# Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.
# Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.
# Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.
# Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.  
# Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í lista- og menningarlífi.

Umsóknarfrestur um verkefnastyrki er til og með 22. febrúar 2013.   

Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.