25. september 2019
Fréttir
NORA, Norræna Atlantssamstarfið, styrkir samstarfsverkefni á milli Íslands og a.m.k. eins annars NORA-lands, þ.e. Grænlands, Færeyja eða strandhéraða Noregs.
Nú er komið að seinni úthlutun ársins 2019.
Umsóknarfrestur er 7. október 2019.
Þau svið sem helst eru styrkt eru eftirfarandi:
- Skapandi greinar: Starfsemi sem sprettur úr sköpunargleði, þekkingu og hæfileikum fólks og eflir velferð og eykur atvinnutækifæri.
- Græn orka: Þróun og innleiðing græna orkulausna til sjós og lands.
- Lífhagkerfi: Nýsköpunarverkefni sem stuðla að verðmætaaukningu með þróun vannýtts hráefnis, nýrrar verðmætasköpunar og sjálfbærrar matvælaframleiðslu.
- Sjálfbær ferðaþjónusta: Getur aukið fjölbreytni í viðkvæmum hagkerfum.
- Upplýsinga- og fjarskiptatækni: Mikilvægur liður í að sigrast á fjarlægðum.
- Velferðarþjónusta: Samstarf sem tekst á við þær áskoranir sem miklar vegalengdir og skortur á fagfólki skapa.
- Öryggismál/viðbúnaður á hafi: Vaxandi skipaumferð á Norður-Atlantssvæðinu og Norðurheimskautssvæðinu fylgja nýjar og flóknar áskoranir.