Auglýst er eftir styrkumsóknum um styrki úr sjóði er verkefnisstjórn Allra vatna til Dýrafjarðar veitir úr í umboði Byggðastofnunar. Umsóknum skal skilað á tölvutæku formi á þar til gerðu eyðublaði sem finna má hér. Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2018. Allir sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu við Dýrafjörð eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri Agnes Arnardóttir, netfang agnes@vestfirdir.is
Styrkhæf verkefni eru rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni þar sem markvisst er stefnt að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Einnig er heimilt að styrkja stofnfjárfestingu í hvers konar verkefnum að því gefnu að þau raski ekki samkeppni á viðkomandi þjónustusóknarsvæði. Enn fremur samfélagseflandi verkefni önnur en þau sem teljast til lögbundinna og/eða hefðbundinna verkefna ríkis eða sveitarfélaga
Úthlutunarreglur verkefnisins Öll vötn til Dýrafjarðar 2018
- Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðu eyðublaði, sjá hér að ofan.
- Verkefni sem sótt er um fyrir þurfa fyrst og fremst að vera til þess fallin að efla samfélagið við Dýrafjörð.
- Umsækjendum er heitið trúnaði um það sem fram kemur í umsókn og varðar verkefnið sem sótt er um styrk til meðan á umsóknarferlinu stendur. Að úthlutun lokinni verður birtur opinberlega listi yfir styrkt verkefni ásamt stuttri lýsingu, styrkupphæð og nöfnum styrkþega.
- Verkefni eða sá hluti verkefnis sem styrktur er skal að jafnaði ekki standa yfir lengur en í eitt ár. Sé um að ræða langtímaverkefni skal gera grein fyrir áföngum í verkefninu og óska einungis eftir styrk fyrir þeim hluta sem áætlað er að ljúka innan 12 mánaða frá undirskrift samnings um styrkveitinguna.
- Samningur er gerður um sérhverja styrkveitingu. Hafi samningur ekki verið undirritaður við styrkþega innan þriggja mánaða frá tilkynntri úthlutun fellur styrkveitingin sjálfkrafa niður.
- Styrkir greiðast út eftir framvindu verkefna og samkvæmt samningi. Forsenda greiðslna er að áfanga- eða lokaskýrsla hafi verið samþykkt. Lokagreiðsla fer fram þegar lokaskýrsla hefur verið samþykkt af verkefnisstjórn. Þangað til skal halda eftir 50% af styrkupphæð.
- Þegar úthlutun hefur verið kunngjörð er um að ræða endanlega niðurstöðu. Ekki er hægt að fara fram á endurmat á einstökum umsóknum.
- Til ráðstöfunar eru 7 milljónir króna. Ekki er krafist mótframlags umsækjenda.
- Við mat á umsóknum verður tekið mið af hversu vel verkefnið fellur að skilaboðum frá íbúaþingi, árlegum íbúafundum eftir það og stefnumótun verkefnisins.
10. Einnig verður horft til þess hvort:
- -Útkoma verkefnisins nýtist sem flestum í byggðalaginu.
- -Verkefnið trufli samkeppni á þjónustusvæðinu.
- -Verkefnið leiði til atvinnusköpunar á heilsársgrundvelli.
- -Útfærsla verkefnisins sé líkleg til árangurs og þekking/reynsla sé til staðar.
- -Markaðs- og/eða rekstrarlegar forsendur séu trúverðugar.
- -Áhrifa verkefnis gæti fyrst og fremst á Þingeyri og við Dýrafjörð.
- -Verkefnið hvetji til samstarfs og samstöðu.
- -Styrkveiting hafi mikil áhrif á framgang verkefnis.
11. Ef fyrir liggur að verkefni umsóknaraðila raski ekki samkeppni á viðkomandi þjónustusóknarsvæði er heimilt að styrkja stofnfjárfestingu í aðstöðu, þ.m.t. tækjum og búnaði sem eru forsenda fyrir framleiðslu afurða og þjónustu.
12. Samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, samþykkir umsækjandi að verkefnisstjórn verkefnisins vinni með þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að fjalla um og greina umsókn.
Ítarefni:
Styrkjareglur Brothættra byggða í heild sinni má finna hér
Skilaboð frá íbúafundi 4. Des.: https://www.byggdastofnun.is/static/files/Brothaettar_byggdir/Thingeyri/framtidarsyn-oll-votn-til-dyrafjardar-thingeyri2.pdf