Púkinn, barnamenningarhátíð á Vestfjörðum, verður haldin dagana 31. mars – 11. apríl 2025. Þema hátíðarinnar var valið af Ungmennaráði Vestfjarða og er það: Vestfirskar þjóðsögur. Nú er hægt er að sækja um styrki til að vera með viðburði tengda hátíðinni.
Markmið með sjóðnum er að tryggja vestfirskum börnum vandaða menningarviðburði til að njóta eða taka þátt í. Viðburðir þurfa ekki að fara fram á meðan á hátíðinni stendur en mælst er til að hægt verði að njóta afraksturs þeirra innan dagsetninga hennar. Styrkjum er úthlutað til einstakra viðburða, eða raða viðburða. Ekki eru veittir styrkir til rekstrar‐, stofnkostnaðar‐ eða endurbóta eigna eða fyrirtækja. Úthlutað er til lögráða einstaklinga, listhópa, félagasamtaka, stofnana eða fyrirtækja sem koma að menningarviðburðum fyrir börn á Vestfjörðum.
Til úthlutunar eru 2.500.000 kr.
Skilyrði fyrir styrkveitingu
Viðburðir skulu tengjast barnamenningarhátíðinni Púkanum
Viðburðir skulu ætlaðir börnum á grunnskólaaldri
Annað sem hafa ber í huga
Viðburðir á Púkanum eru að kostnaðarlausu nema annað sé tekið fram
Viðburðir sem haldnir eru á öllum þremur svæðum Vestfjarða njóta forgangs
Leitast verður við að tryggja dreifingu viðburða um alla Vestfirði og getur mat úthlutunarnefndar tekið mið af því