Fara í efni

Opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð

Fréttir Uppbyggingasjóður Vestfjarða Sóknaráætlun Vestfjarða

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða. 
Uppbyggingarsjóður styrkir allskyns verkefni sem fara fram á Vestfjörðum,  nýsköpunar- og  menningarverkefni, atvinnuþróunarverkefni og ýmislegt sem styrkir samfélagið á Vestfjörðum. Menningarstofnanir sem stunda starfsemi allt árið geta sótt um rekstrarstyrk. 

Vinnustofur þar sem veitt er aðstoð við umsóknagerð verða haldnar sem hér segir:

  • Vinnustofur á Ströndum mánudaginn 21. okt. kl. 16-18
  • Vinnustofur á Patreksfirði þriðjudaginn 22. okt. kl. 16-18
  • Vinnustofur á Ísafirði miðvikudaginn 23. okt kl. 16-18

Starfmenn Vestfjarðastofu hafa umsjón með vinnustofum í hverri starfsstöð.

Umsóknarfrestur rennur út fimmtudaginn 31. október kl. 16:00

Hér má sjá verklags- og úthlutunarreglur sjóðsins í heild sinni. 

Allar nánari upplýsingar má finna á síðunni www.vestfirdir.is/uppbyggingarsjodur