Byggðastofnun, Vestfjarðastofa og Reykhólahreppur hafa undirritað samning um þátttöku Reykhólahrepps í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir. Byggðarlagið er það fimmtánda í röðinni sem hefur þátttöku í verkefninu frá því að það hóf göngu sína á Raufarhöfn árið 2012. Sú nýjung er að samningur um verkefnið er gerður til fimm ára í stað fjögurra líkt og áður hefur verið gert í þátttökubyggðarlögum Brothættra byggða. Því er gert ráð fyrir að verkefnið vari til ársloka 2029. Með lengingu framkvæmdatímabils standa vonir til að hægt verði að ná auknum árangri og skjóta styrkari stoðum undir atvinnulíf, mannlíf og búsetu í Reykhólahreppi.
Vestfjarðastofa mun á næstunni auglýsa eftir verkefnastjóra sem mun hafa umsjón með verkefninu. Næstu skref eru meðal annars: myndun verkefnisstjórnar, stöðugreining, könnun meðal íbúa og undirbúningur íbúaþings sem verður haldið fljótlega á nýju ári. Þar gefst íbúum tækifæri til að ræða hagsmunamál byggðarlagsins og móta áherslur í verkefninu.