Skjaldborg Hátíð íslenskra heimildarmynda á Patreksfirði hlaut Eyrarrósina 2020, viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Tilkynnt var um handhafa verðlaunanna á Bessastöðum í gær, en þetta var í sextánda sinn sem Eyrarrósin var veitt.
Eyrarrósin er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Air Iceland Connect og Listahátíðar í Reykjavík.
Alls bárust 25 umsóknir um Eyrarrósina 2020 og voru sex verkefni valin á Eyrarrósarlistann í ár:
- Júlíana - Hátíð sögu og bóka (Stykkishólmur)
- Kakalaskáli í Skagafirði (Akrahreppur)
- Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði (Fjallabyggð, Siglufjörður)
- Plan B Art Festival (Borgarbyggð/Vesturland)
- Reykholtshátíð (Borgarfjörður/Vesturland)
- Skjaldborg -Hátíð íslenskra heimildarmynda (Patreksfjörður)
Eliza Reid forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar og afhenti hún viðurkenninguna á Bessastöðum í gær.
Skjaldborgarhátíðin í ár verður haldin um hvítasunnuhelgina, 29. maí til 1. Júní. Hátíðin setur mikinn svip á bæjarlífið ár hvert þar sem skipuleggjendur, fyrirtækin, félagasamtök og íbúarnir leggjast á eitt að gera öllum kleift að njóta helgarinnar í góðum félagsskap.