Fara í efni

Skrifað undir Menningarsamninga

Fréttir
Anna Guðrún Edvaldsdóttir, Sturla Böðvarsson og Adolf H. Berndsen
Anna Guðrún Edvaldsdóttir, Sturla Böðvarsson og Adolf H. Berndsen

Í dag var skrifað undir tvo menningarsamninga á Staðarflöt í Hrútafirði, annars vegar milli ríkisvaldsins og Norðurlands vestra og hins vegar milli ríkisvaldsins og Vestfjarða. Það var Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sem skrifaði undir samningana fyrir hönd ríkisvaldsins, en fyrir Vestfirði skrifaði Anna Guðrún Edvardsdóttir formaður stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga undir og fyrir Norðurland vestra skrifaði Adolf H. Berndsen formaður samtaka sveitarfélaga á svæðinu undir. Fjöldi sveitarstjórnarmanna og fólks sem stendur framarlega í menningarstarfi og menningartengdri ferðaþjónustu á öllum Vestfjörðum og Norðurlandi var viðstatt.


Tilgangur menningarsamninga er að efla og styðja við menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu í þessum landshlutum. Jafnframt eru áhrif sveitarfélaga á forgangsröðun verkefna aukin. Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna verða svokölluð menningarráð sem stofnuð hafa verið á báðum svæðum og munu þau standa fyrir þróunarstarfi í menningarmálum, auk þess að auglýsa og úthluta fjármagni til menningarverkefna og verkefna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Framlag ríkisins til samningsins við Vestfirðinga mun vera rúmlega 90 milljónir á þremur árum, en samningurinn gildir út árið 2009.

Boðið var upp á kaffi og kökur og menningaratriði úr landshlutunum. Fyrir hönd Vestfirðinga tróð Kristján Sigurðsson á Hólmavík upp á athöfninni og söng lag úr söngleiknum Þið munið hann Jörund sem Leikfélag Hólmavíkur sýnir um þessar mundir.


Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var á staðnum og kvaðst ánægður með að samningarnir væru nú loks undirritaðir og sagðist sannfærður um að þeir myndu verða til þess að efla menningarstarf á svæðunum, eins og þegar hefði komið í ljós á Austurlandi þar sem slíkur samningur hefur verið í gildi í nokkur ár. Bæði Samgönguráðuneyti og Menntamálaráðuneyti leggja fé til samninganna, en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra var forfölluð.

Anna Guðrún Edvaldsdóttir, formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga, tók einnig til máls. Hún lagði áherslu á mikilvægi öflugs og góðs samstarfs sveitarfélaga á Vestfjörðum öllum við framkvæmd menningarsamningsins og þau fjölmörgu tækifæri og ávinning sem í samstarfinu býr.

Fleiri myndir frá atburðinum má finna undir þessum tengli