Fara í efni

Styrkúthlutun Menningarráðs í desember 2009

Fréttir

Seinni úthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2009 fór fram í Hlunnindasafninu á Reykhólum síðastliðinn föstudag. Voru þar afhent vilyrði um styrki frá Menningarráði Vestfjarða, en alls fá 37 verkefni framlög að þessu sinni á bilinu 150 þúsund til 1 milljón, samtals að upphæð 18,5 milljón. Umsóknir sem bárust að þessu sinni voru 89 og var samtals beðið um 75 milljónir í verkefnastyrki.

Hæstu styrkirnir að þessu sinni, að upphæð 1 milljón, fara til þriggja verkefna. Arnarsetur Íslands í Reykhólahreppi fær styrk til hönnunar og undirbúnings sýningar sem fyrirhugað er að opna næsta sumar, Edinborgarhúsið á Ísafirði fær styrk til listviðburða í Edinborg og félagið Aldrei fór ég suður fær styrk til að halda samnefnda tónlistarhátíð á Ísafirði um næstu páska. Það voru Leifur Ragnar Jónsson formaður Menningarráðsins og Jón Jónsson menningarfulltrúi sem afhentu vilyrði fyrir styrkjum og héldu erindi. Einnig kynnti Bergsveinn Reynisson á Gróustöðum verkefnið Arnarsetur Íslands, áður en menn snéru sér að kaffinu og vöfflunum.

Styrkirnir fara annars til margvíslegra verkefna sem sýna að sóknarhugur og bjartsýni eru ríkjandi í vestfirsku menningarlífi, þrátt fyrir þrengingar og niðurskurð á fjölmörgum sviðum í samfélaginu. Menningarráð Vestfjarða mun næst auglýsa eftir umsóknum um styrki fljótlega á nýju ári.

Listi um styrki Menningarráðs haustið 2009:
 

Arnarsetur - hönnun og undirbúningur sýningar (Arnarsetur Íslands) 1.000.000

Aldrei fór ég suður - tónlistarhátíð á Ísafirði um páskana 2010 (Aldrei fór ég suður, félag) 1.000.000
Listviðburðir í Edinborgarhúsi júlí 2009 - apríl 2010 (Edinborgarhúsið á Ísafirði) 1.000.000

Vaxandi tungl (Í einni sæng ehf) 750.000

Sýning í kirkju Samúels Jónssonar að Brautarholti í Selárdal (Félag um endurreisn listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal) 750.000

Focus Westfjords (Focus Westfjords) 750.000

Líf í Árneshreppi (Artic kind production) 750.000

Sýning í Skrímlasetri (Félag áhugamanna um skrímslasetur) 750.000
Svarti víkingurinn - Leikin heimildarmynd (Strandagaldur ses) 750.000

Margmiðlunarnámskeið fyrir ungt fólk í Tankinum á Flateyri (Brimnesvegur 28 ehf) 700.000
Wild Westfjords - Ljósmyndabók + CD (Soffía M Gústafsdóttir) 700.000

 

Sögusýning um refaveiðar og refaveiðimenn (Melrakkasetur Íslands) 600.000
Sýning um æfi og störf Þorsteins Þorleifssonar (Minja og handverkshúsið Kört) 600.000

Samstarfs- og þróunarverkefni: Listaháskóli unga fólksins (Háskólasetur Vestfjarða) 550.000

 

Drangajökull - sambúð manns og náttúru (Snjáfjallasetur) 500.000

Melrakki - einleikur (Kómedíuleikhúsið) 500.000

Heimildamynd um gerð og uppsetningu altaristöflunnar Fuglar himinsins (Ísafjarðarkirkja) 500.000
Þjóðbrók og hitt hyskið. Myndskreytt barnabók á fjórum tungumálum (Brúðuleikhúsið Dúkkukerran) 500.000

Járnminnismerki (Ljósop ehf.) 500.000

 

Sönglagakeppni Vestfjarða (Magnús Hávarðarson) 400.000

Flæði - Útgáfa á frumsamdri tónlist og tónleikaröð af því tilefni (Magnús Hávarðarson) 400.000

Menning og saga á Bíldudal (Birna Friðbjört Stephensen Hannesdóttir) 400.000
Álfaleitin: Námskeið - leiklist og söngleikur (Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar) 400.000

Sögusýning í Einarshúsi (Einarshúsið ehf) 400.000

Eikin ættar minnar, af séra Ólafi á Söndum (Íþróttafélagið Höfrungur, leikdeild) 400.000
Samstarfs- og þróunarverkefni: Brennið þið vitar (Listahátíð í Reykjavík) 400.000

 

Þögul mynd af húsi (Minningasafnið) 300.000

Námskeið í faldbúningasaum í heimabyggð (Þjóðbúningafélag Vestfjarða) 300.000

Útgafa bóka um þjóðtrú með áherslu á Vestfirði (Þjóðfræðistofa) 300.000
Á reki: Útgáfa bókar um rekavið og strandmenningu (Þjóðfræðistofa) 300.000

 

Svo langt sem það nær (Þröstur Jóhannesson) 250.000

Simbahöllin: Old style newspaper (Wouter Van Hoeymissen) 250.000

Lýðveldið á Eyrinni (Kvennabragginn) 200.000
Dugmiklar dragþórur - sýning á vélakosti Sauðfjárseturs á Ströndum (Sauðfjársetur á Ströndum) 200.000

 

Kirkjur á Vestfjörðum (Marsibil G. Kristjánsdóttir) 150.000
Söguritun, útgáfa og sýning vegna aldarafmælis Kvenfélagsins Hlífar á Ísafirði árið 2010 (Kvenfélagið Hlíf) 150.000

Vestfirska leikárið 2009-2010 (Kómedíuleikhúsið, Act alone, Brúðuleikhúsið Dúkkukerran, Höfrungur leikdeild, Leikfélag Hólmavíkur, Litli Leikklúbburinn) 150.000