Auglýst var eftir styrkumsóknum 29. apríl 2020 úr Frumkvæðissjóð sem verkefnisstjórn Allra vatna til Dýrafjarðar veitir úr í umboði Byggðastofnunar fyrir verkefnastyrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð.
Umsóknarfrestur rann út 14. maí 2020. Til úthlutunar voru 9,37 milljónir. Alls bárust 16 umsóknir. Heildarumfang verkefna er umsóknir lúta að er um 58 milljónir. Sótt var um rúmlega 22,5 milljónir. Allt voru þetta umsóknir sem féllu vel að verkefninu Öll vötn til Dýrafjarðar og skilyrðum Frumkvæðissjóðs. Úthlutað var styrkjum til 12 verkefna tengdum menningu og listum, atvinnuuppbyggingu og nýsköpun. Allt eru þetta verkefni sem verkefnisstjórn telur líkleg til árangurs og að þau muni hafa jákvæð áhrif á Þingeyri og við Dýrafjörð.
Yfirlit yfir styrkhafa sem hlutu styrk úr Frumkvæðissjóð ÖVD
Nafn umsækjenda |
Nafn verkefnis |
Styrkupphæð |
Berserk Films |
Sumarljós og svo kemur nóttin |
1.200.000 ISK |
Blábankinn |
Startup Westfjords'20 Nýsköpunarhraðall |
400.000 ISK |
Janne Kristensen |
Group Residencies |
800.000 ISK |
Janne Kristensen |
Website for enneagram |
200.000 ISK |
Jóhanna Gunnarsdóttir |
Bakkarétt í Brekkudal í Dýrafirði - forransókn |
170.000 ISK |
Matthildur Helgadóttir f. h. eigenda Alviðru 3 |
Fuglaskoðun í Alviðru – viðskipaáætlun |
400.000 ISK |
Óttar Freyr Gíslason |
Fjallamennska í Vestfirsku ölpunum |
500.000 ISK |
Simbahöllin ehf. |
Riding Courses for kids and beginners |
1.250.000 ISK |
Simbahöllin ehf. |
Reinventing Simbahöllin |
150.000 ISK |
Tankur menningarfélag |
Tankur – stálsmíðavinna |
3.200.000 ISK |
Víkingar á Vestfjörðum |
Víkingasvæðið 2020 |
500.000 ISK |
Þórir Örn Guðmundsson |
Fegrun miðbæjar Þingeyrar |
600.000 ISK |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|