Fara í efni

Sumarmarkaður Dokkunnar og Vestfjarðaleiðarinnar

Fréttir

Í júlímánuði hefur verið boðið upp á sumarmarkaði víðsvegar á Vestfjarðaleiðinni þar sem handverksfólk, smáframleiðendur og hverskyns listafólk hefur selt og kynnt fjölbreyttan varning. Þegar hafa verið haldnir markaðir í Búðardal, á Hólmavík og Patreksfirði. Nú er komið að norðanverðum Vestfjörðum og verður Sumarmarkaður Vestfjarðaleiðarinnar og Dokkunnar haldinn föstudaginn 26. júlí frá 13-16. Markaðurinn verður í nafnlausu götunni neðan við Dokkuna á Ísafirði og verður hún lokuð á meðan á honum stendur.

Gummi Hjalta og Stebbi Jóns mæta kl.14:30 og spila fyrir gesti. 

Matvælaframleiðendur, handverksfólk, listafólk, smáframleiðendur og aðrir sem vilja taka þátt í mörkuðunum eru hvött til að skrá sig til leiks sem fyrst og sýna hvað Vestfjarðaleiðin hefur upp á margt að bjóða. Þátttaka er gjaldfrjáls.

Skráning fer fram hér

Skammt undan verður skemmtiferðaskip í höfn svo það ætti að vera margt um manninn.

Vestfjarðaleiðin er ferðamannaleið um Vestfirði og Dali með einstökum áningarstöðum og upplifunum þar sem auðvelt er að kanna króka og kima svæðisins og upplifa óspillta náttúru. Á svæðinu eru líka fjölmargir matvælaframleiðendur, handverksfólk og aðrir smáframleiðendur sem með framlagi sínu bæta enn frekar á jákvæða upplifun gestanna sem sækja okkur heim. Við viljum nú blása til kynninga á þessum aðilum með sumarmörkuðum á Vestfjarðaleiðinni í júlí.