Fara í efni

Tilnefningar til umhverfisverðlauna

Fréttir

Ferðamálastofa hefur auglýst eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna árið 2013. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða aðilum sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi. Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta, geta komið til greina. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki eða félagasamtök.

 

Aðilar geta tilnefnt hvort sem er sjálfa sig eða önnur fyrirtæki og félög. Tilnefningar sendist á skrifstofu Ferðamálastofu, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík, merktar Umhverfisverðlaun eða með tölvupósti á umhverfisstjóra stofnunarinnar, Björn Jóhannsson, á netfangið bjorn@ferdamalastofa.is fyrir 1. febrúar næstkomandi.