Á morgun rennur út umsóknarfrestur í sumarviðburðasjóð Ísafjarðarhafna. Markmiðið með sjóðnum er að styrkja og bæta bæjarbrag í tengslum við skemmtiferðaskipakomur, þar sem áhersla er lögð á að efla menningu og mannlíf. Tilkoma sjóðsins er í tengslum við stefnu Ísafjarðarbæjar um málefni skemmtiferðaskipa þar sem hluta tekna af skipakomum skuli varið í að efla menningu- og félagslíf í sveitarfélaginu.
Styrkjum er úthlutað til einstakra viðburða, eða raða viðburða. Ekki eru veittir styrkir til rekstrar‐, stofnkostnaðar‐ eða endurbóta fyrirtækjum þ.m.t. á eignum.
Í sjóðinn geta sótt lögráða einstaklingar, listhópar, félagasamtök, stofnanir eða fyrirtæki sem koma að menningarviðburðum í Ísafjarðarbæ eða hyggjast gera svo.
Helstu skilyrði fyrir styrkveitingu:
Viðburðir skulu haldnir á tímabilinu maí til september
Viðburðir skulu vera þátttakendum/áhorfendum að kostnaðarlausu
Viðburðir sem haldnir eru á milli klukkan 10:00 og 15:00 njóta forgangs
Hægt er að sækja um styrk að hámarki 1.000.000 kr.
Umsóknarfrestur er til 4. apríl kl 16:00.
Ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda.
Vestfjarðastofa fer um umsýslu sjóðsins. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað má finna hér.