Fara í efni

Upplýsingamiðstöð Vestfjarða - Sumarstarfsmaður

Störf í boði

Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði óskar eftir að ráða sumarstarfsmann. Um er að ræða fullt starf frá 20. maí til loka ágúst 2025.

Helstu verkefni

  • Að veita gestum upplýsingamiðstöðvar aðstoð og upplýsingar eftir þörfum, einkum varðandi Vestfirði en þó einnig um landið í heild. Einnig þarf að veita aðstoð í síma og skriflega (í tölvupósti).
  • Að aðstoða við móttöku og dreifingu bæklinga og annars kynningarefnis.
  • Önnur verk sem forstöðumaður kann að fela starfsmanni.

Hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund og mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg og færni í öðru tungumáli mikill kostur
  • Vera orðinn 18 ára
  • Jákvætt hugarfar
  • Góð þekking á staðháttum á Íslandi, einkum á Vestfjörðum æskileg

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).

Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2025. Umsóknum skal skilað til Heimis G. Hanssonar, forstöðumanns upplýsingamiðstöðvar á netfangið upplysingamidstod@isafjordur.is. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá.

Nánari upplýsingar veitir Heimir í síma 450-8060 eða í gegnum fyrrgreint netfang.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-