Í gær 14 febrúar voru styrkir úr Þróunarsjóði Flateyrar afhentir með formlegum hætti á samkomu í Gunnukaffi á Flateyri.
Alls bárust 25 umsóknir þar sem í heildina var sótt um ríflega 32 miljónir af heildarkostnaði verkefna upp á 50,6 miljónir. Til úthlutunar voru 15 miljónir.
Flestar umsóknir vísuðu til með einum eða öðrum hætti til markmiða Flateyrarverkefnisins og niðurstaðna íbúaþings og áherslum í sóknaráætlun Vestfjarða. Af þeim 16 verkefnum sem hlutu styrk má flokka fjögur sem samfélagsverkefni og tólf sem verkefni í atvinnu- og nýsköpun. Reynt var að velja sem fjölbreyttust verkefni og var stuðst við stigagjöf eftir mat á tilteknum þáttum í takt við markmið og áherslur verkefnisins. Mat verkefna tekur mið af íbúasamráði í tengslum við samfélagsverkefni á Flateyri og markmið Sóknaráætlunar Vestfjarða. Umsóknir sem bárust í sjóðinn voru metnar af verkefnisstjórn byggðalagsins, sem skipuð er fulltrúum frá Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og hverfaráði Önundarfjarðar.
Verkefni sem hlutu styrk í þetta sinn má sjá hér að neðan.
Heiti verkefnis | Nafn umsækenda | Upphæð |
Hvítisandur, sjóböð í Holtsfjöru | Runólfur Ágústsson og samstarfsaðilar | 1.300.000 |
Jólagjöf hestsins |
Kalksalt ehf |
900.000 |
Brum - Leikfangagerð á Flateyri |
Viktor Páll Magnússon |
750.000 |
Samkomuhúsið á Flateyri, ástandskönnun og gerð kostnaðaráætlunar vegna nauðsynlegra endurbóta |
Lýðskólinn á Flateyri |
500.000 |
Markaðssetning fyrir Sumardagskrá Vagnsins 2023 |
Flateyrarvagninn ehf. |
1.200.000 |
Litlabýli treats-tækjakaup |
Litlabýli ehf |
1.100.000 |
Vetrarferðamennska - útbúnaður |
Lýðskólinn á Flateyri |
1.300.000 |
Ásýnd þorps: Umhverfisátak |
Kvenfélagið Brynja, Flateyri |
600.000 |
Þverárvirkjun í Korpudal |
KorpaTech |
650.000 |
Eldsteinn/Firestone |
Magnús Gunnar Eggertsson |
500.000 |
Korpudalur Glamúr Camping |
KorpaTech |
750.000 |
Ocean Adventure Center |
Nicole Sühring |
1.300.000 |
Hamp rækt á Flateyri |
Önundur Hafsteinn Pálsson/ Geir Magnússon |
800.000 |
Markaðssetning fyrir opnun Hnappsins |
Juraj Hubinák |
800.000 |
Ostatankur fyrir Ostagerðarfélag Önfirðinga |
Ostagerðarfélag Önfirðinga |
1.800.000 |
Þriggja þrepa sköpunarferli í vinnu- og sýningarrými |
Margeir Haraldsson f.h ÖN |
750.000 |
Verkefnisstjórn óskar styrkhöfum til hamingju með styrkina og óskar þeim góðs gengis með verkefni sín.