Fyrri styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða árið 2010 fór fram við hátíðlega athöfn á Skrímslasetrinu á Bíldudal þann 15. maí kl. 15:00. Flutt var tónlist og haldin erindi, Skrímslasetrið kynnt og skoðað, auk þess sem styrkvilyrði voru afhent og að sjálfsögðu var boðið upp á kaffi og vöfflur á eftir. Umsóknir til Menningarráðsins að þessu sinni voru 78 talsins, en alls fengu 34 verkefni stuðning að upphæð 15 milljónir samtals. Þeim fækkaði þó um eitt áður en að úthlutun kom, því einn styrkurinn var afþakkaður þar sem forsendur fyrir verkefninu höfðu breyst og það var ekki lengur framkvæmanlegt. Aftur verður auglýst eftir styrkumsóknum í haust.
Eftirtaldir aðilar og verkefni fengu stuðning frá Menningarráði Vestfjarða í maí 2010:
Í einni sæng: Skáldið á Þröm - 1.000.000
Melrakkasetur Íslands: Sýning Melrakkaseturs Íslands - fræðslu miðlað til barna - 1.000.000
Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda: Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda 2010 - 1.000.000
Act alone: Act alone leiklistarhátíð 2010 - 1.000.000
Við Djúpið, félag: Tónlistarhátíðin Við Djúpið 2010 - 1.000.000
TOS ungmennaskipti: Vestfirska Veðurvölundarhúsið - 800.000
Vestfirska forlagið: Mannlíf og saga fyrir vestan fyrr og nú.
Úrval frásagna á ensku af Vestfirðingum í blíðu og stríðu - 750.000
Sauðfjársetur á Ströndum: Hrútar - heimildamynd - 700.000
Í einni sæng, Íslandssaga, Sigurður Ólafsson: Vaxandi Tungl - 700.000
Jóhann Ágúst Jóhannsson: Pönk á Patró - 600.000
Kómedíuleikhúsið: Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins - 600.000
Menningarmiðstöðin Edinborg, Ísafirði: Listviðburðir í
Edinborgarhúsi 15. apríl 2010 - nóvember 2010 - 600.000
Vesturbyggð: Sagafjords - ferðumst og fræðumst 2010 - 600.000
Gautshamar ehf: Til móts við fornan sið - 500.000
Minjasafn Egils Ólafssonar: Félagslíf í Breiðafjarðaeyjum - 400.000
Fólkvangur ehf fyrir Passport Kvikmyndir: Norð Vestur - 400.000
Björgvin Bjarnason: Vegur sem var - Myndir af Óshlíð - 350.000
Félag áhugamanna um skrímslasetur: Útgáfa á Skrímslatali eftir Þorvald Friðriksson - 300.000
Sigríður Hafliðadóttir: Sýning á gömlum munum á Litlabæ - 250.000
Sumarmarkaður Vestfjarða: Sumarmarkaður Vestfjarða 2010 - söguskilti - 250.000
Gíslastaðir Haukadal: Einstök sýning - Ísleifur Konráðsson - 250.000
Þóra Sigurðardóttir og Björn Samúelsson: DALIR og HÓLAR - Landslag 2010 - 200.000
Birgir Örn Sigurjónsson: Útgáfutónleikar Biggabix um Vestfirði - 200.000
Þröstur Jóhannesson: Svo langt sem það nær - tónleikaferð - 200.000
Minjasafn Egils Ólafssonar: Skæði - 200.000
Leikfélag Hólmavíkur, Grunnskólinn á Hólmavík, Tónskólinn á Hólmavík:
Það er gaman að leika! (Áhugaleikarinn) - 200.000
Jón Þórðarson: Sögur úr pokahorninu - 150.000
Valgerður Rúnarsdóttir: Var það Gangári? - 125.000
Sögumiðlun ehf: Rit um bæjarbrag og atvinnulíf á Ísafirði á fjórða og fimmta áratug 20. aldar - 100.000
Claus Sterneck: Pictures - and their noises - 75.000
Þá var ráðstafað fjármagni í þrjú eftirtalin samstarfsverkefni Menningarráðs með öðrum aðilum:
Samstarf: Safna-, setra- og sýningaklasi á Vestfjörðum - 200.000
Samstarf: Félag vestfirskra listamanna - 150.000
Samstarf: Námskeið um viðburðastjórnun - 50.000