Vestfjarðastofa hefur nú sent viðhorfskönnun í pósti á alla með lögheimili á Vestfjörðum um viðhorf þeirra til fiskeldis og samgöngumála á Vestfjörðum en markmiðið er að fá fram væntingar og viðhorf Vestfirðinga til þessara málaflokka.
Sama könnun var lögð fyrir Vestfirðinga árið 2020 og hafa niðurstöður þeirrar könnunar verið nýttar í hagsmunagæslu fjórðungsins. Til að ná til sem flestra hefur verið farin sú leið að senda bréf til allra og hægt er að fara tvær leiðir til þáttöku. Fara á netslóðina sem fram kemur í bréfinu ásamt lykilorði eða að nota QR kóðann ásamt lykilorði en með þessum hætti er auðvelt að taka þátt í könnuninni.
Til að tryggja jafnræði íbúanna er könnunin á þremur tungumálum; íslensku, ensku og pólsku. Það er rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) sem sér um framkvæmd könnunarinnar fyrir hönd Vestfjarðastofu.
Með könnuninni gefst öllum íbúum Vestfjarða einstakt tækifæri til að láta skoðun sína í ljós á þessum tveimur málaflokkum sem hafa verið í brennidepli undanfarin ár. Niðurstöður verða meðal annars nýttar í stefnumótun sveitarfélaga og svæðisins alls til hagsbóta fyrir íbúana.